Myndaleikur Arctic Open 2014

Sigurmyndin í ár
Sigurmyndin í ár

Á nýliðnu Arctic open vorum við með skemmtilegan myndaleik í samstarfi við Flugfélag Íslands, Höldur og Keahotels þar sem við fengum kylfinga til að smella af skemmtilegum myndum á meðan að á móti stóð.

Það voru fjölmargar myndir teknar og margar hverjar virkilega skemmtilegar.

Nú hefur dómnefnd lokið störfum og valið sigurmyndina, er það Karl Jónsson sem á hana og óskum við honum kærlega til hamingju og hlökkum til að sjá hann á Arctic open 2015 :)

Þótti nefndinni myndin skemmtilega uppsett og gleðin skín úr andlitum vel klæddra kylfinga.

VIð þökkum öllum þeim fjölmörgu kylfingum sem tóku þátt í þessum skemmtilega leik með okkur.