Mótaskrá GA 2019 í smíðum

Nú erum við hjá GA í óðaönn að skipuleggja mótasumarið 2019 hjá okkur og höfum við nú þegar sett inn nokkur mót á golf.is líkt og Arctic Open, Icewear Bombuna, Rub23 Herramótið og fleiri. 

Meistaramót GA 2019 verður 10-14 júlí þetta árið og því geta félagsmenn farið að skipuleggja sumarfríið í kringum þessar dagsetningar:) Verðlaunaafhending og veisluhöld verða á laugardagskvöldinu þar sem GA félagar ætla að gera sér glatt kvöld og hvetjum við sem flesta til að fjölmenna á þetta skemmtilega mót. Nýtt fyrirkomulag verður á meistaramótinu í nokkrum flokkum í ár sem verða kynntir nánar síðar, þar á meðal punktakeppni í stað höggleiks í sumum flokkum. Félagsmenn geta nú þegar skráð sig í mótið ásamt öðrum mótum.