Minnum á vinnudag á morgun 10-14

Á morgun, sunnudaginn 11. maí, er vinnudagur GA og munum við þá standsetja völlinn almennilega fyrir opnun á mánudag.

Vinnudagurinn er frá 10-14 og hvetjum við GA félaga til að mæta og aðstoða okkur. Í lok dags mun svo Friðjón hjá Jaðar Bistro vera með veitingar fyrir duglega vinnuþjarka.

Það verður nóg að gera og hlökkum við til að sjá sem flesta.

Golfskáli og nærumhverfi

  • Almenn snyrting í kringum golfskála
  • Stilla garðhúsgögnum upp

Golfvöllur

  • Keyra salla í stíga
  • Setja sand í glompur og raka
  • Standsetja glompur
  • Setja út teigmerki og bekki
  • Taka greinar sem hafa verið sagaðar