Mikið um að vera á Jaðri um síðustu helgi

Slappað af í kaffi á vinnudeginum
Slappað af í kaffi á vinnudeginum

Um nýliðna helgi var mikið líf á Jaðri.  Á laugardaginn var vinnudagur þar sem fjölmargir félagar í GA mættu og tóku til hendinni í skálanum og kringum skálann.  Pallurinn var allur olíuborinn, ásamt borðum og stólum, tré kringum skála snyrt og felld ásamt fjölmörgum öðrum verkum.  

Á sunnudaginn var svo opinn félagsfundur þar sem við fórum aðeins yfir sumarið, áherslurnar á vellinum og fleira.  Einnig fengum við í heimsókn fulltrúa allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitastjórnarkosningum nú í vor.  Kynntu þau öll sínar áherslur í íþrótta og félagsmálum og svöruðu svo spurningum úr sal.  Það urðu líflegar og skemmtilegar umræður sem allir höfðu vonandi gagn og gaman af.

Þökkum við öllum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur aftur :)

Tré kringum skála klippt og snyrt

Pallurinn olíuborinn

Félagsfundur GA

Forsvarsmenn flokka ásamt formanni ÍBA