Miðvikudagsmót SUBWAY - mót 4

Í dag fór fram fjórða mótið á Subwaymótaröðinni og voru keppendur að þessu sinni alls 14. Spilaðar voru 9-holur og keppt var í punktakeppni.

Efstu fimm sætin í dag skipuðu: 

1. Ólavía á 18 punktum

2. Mikael Guðjón á 18 punktum (betri síðustu sex)

3. Mikael Máni á 16 punktum

4. Andrea á 15 punktum

5. Sara á 15 punktum

Þau fá að launum 6" Subwaybát að eigin vali:)

Þess má til gamans geta að hástökkvari vikunnar var Auður Snorradóttir en hún fór úr 7 punktum upp í 14, frábær bæting hjá stelpunni.