Meistaramót Lundsvallar á Sunnudaginn

Það er nóg að gera þessa dagana hérna fyrir norðan og líkt og glöggir vita verður völlurinn mikið lokaður um helgina vegna Íslandsbankamótaraðar unglinga sem er frá föstudegi til sunnudags. Þá koma yngstu og efnilegustu kylfingar landsins og etja keppni á okkar frábæra keppnisvelli. Þá er um að gera fyrir klúbbmeðlimi að skoða það frábæra úrval af völlum sem við höfum hérna í kringum okkur.

Á Lundsvelli í Fnjóskadal verður Meistaramót Lunds og hvetjum við alla GA félaga til að gera sér ferð í gegnum göngin og taka þátt þar. Það mót er nefnilega opið öllum GA félögum og eru í boði nándarverðlaun ásamt verðlaunum fyrir höggleik og punktakeppni. Kjörið tækifæri til að skella sér í golf um helgina.

Einnig hvetjum við fólk til að koma uppeftir og fylgjast með unglingunum spila háklassa golf hér um helgina!