Mátunardagar á GA merktum fötum

Þá höfum við fengið í hendurnar stórglæsileg GA merkt föt frá FootJoy og verðum við með opið fyrir mátanir í næstu viku.

Hægt verður að koma og máta fötin og leggja inn pöntun frá 13-16 á mánudag og síðan frá 8-16 út vikuna. Þeir sem ekki komast á þessum tíma geta haft samband við skrifstofa@gagolf.is ef áhugi er fyrir því að fá að máta og við reynum að hafa opið einhvern seinnipart eða stuttan tíma aðra helgi.

Með því að panta fötin á þessum mátunardögum fæst góður afsláttur af fötunum og mælum við því hiklaust með því að sem flestir nýti sér þetta.