Magnús Guðmudsson heiðursfélagi GA er látinn

Magnús Guðmundsson heiðursfélagi í GA er látinn 88 ára að aldri. Magnús, sem varð margfaldur Íslands- og Akureyrarmeistari í golfi lést á heimili sínu í Bandaríkjunum þann 16. janúar síðastliðinn. Hann hafði verið búsettur erlendis í áratugi. 

Magnús kom að hönnun fyrri 9 holanna á Jaðarsvelli og var einn fremsti kylfingur íslendinga.  Hæst ber sigur hans á Íslandsmótinu í golfi 1964 í Vestmannaeyjum þar sem hann sigraði með yfirburðum eða 10 undir pari sem var met sem stóð í tæp 50 ár. 

Golfklúbbur Akureyrar vottar fjölskyldu og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.