Magnús Birgisson ráðinn til GA

Stefanía Kristín, Heiðar Davíð og Magnús Birgisson
Stefanía Kristín, Heiðar Davíð og Magnús Birgisson

Magnús Birgisson hefur verið ráðinn í starf þjálfara hjá GA í sumar, þar sem hann mun starfa með þeim Heiðari og Stefaníu.  Magnús er Akureyringum vel kunnugur en hann bjó hér í 10 ár og var klúbbmeistari GA árið 1983.  Móðir hans er Inga Magnúsdóttir sem varð klúbbmeistari kvenna hjá GA 10 ár í röð frá 1979-1988. 

Með tilkomu Magnúsar er horft til að auka þjónustu GA á öllum sviðum þjálfunar. Þannig verður lögð enn meiri áhersla á metnaðarfullt barna- og unglingastarf sem og að bjóða félögum á öllum getustigum upp á aukið framboð af námskeiðum.

Magnús kemur til starfa 1. júní og mun starfa til 1. september.  Við hjá GA hlökkum mikið til samstarfsins við Magnús og væntum mikils af því.