Mælingar frá Keisaranum á Jaðri 24&25 janúar

Biggi kylfusmiður er á leið norður í enn eitt skiptið og verður með kylfumælingar 24-25 janúar.

Biggi hefur komið reglulega norður til okkar undanfarin ár og er iðulega uppselt í mælingar til hans þannig við hvetjum áhugsama að hafa samband sem fyrst til að bóka mælingar en það er gert með því að senda tölvupóst á skrifstofa@gagolf.is

Biggi mætir m.a. með nýja G440 K driverinn og allt það nýjasta frá Titleist og Ping

Hægt er að bóka fulla mælingu (1klst) á 19.900kr eða hálfa mælingu fyrir annaðhvort járn eða trékylfur (30mín) á 10.000kr.

Nýtum tækifærið og látum þann besta í bransanum mæla okkur fyrir glænýjum kylfum.