Þá er lokamótið í Vetrarmótaröð GA, Höldur X Skógarböðin hafið og leikið er á okkar eigin Jaðarsvelli.
Í fyrsta sinn í vetur verður púttað í herminum en pútt innan við 3,7m eru gefin en þurfa kylfingar annars að pútta. Eins og áður fá kylfingar eins margar tilraunir og þeir vilja til að reyna við verðlaun en veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í höggleik með og án forgjafar í lokamótinu.
Hér að neðan má sjá verðlaunahafana úr marsmótinu en þeir geta nálgast verðlaun sín frá og með mánudeginum 20.apríl í golfbúð GA.
Höggleikur m/fgj.
1.sæti: KaySig -5
2.sæti: Freyr Jónsson -4
3.sæti: Halla Sif -3
Höggleikur án/fgj.
1.sæti: Ágúst Már -8
2.sæti: KaySig -6
3.sæti: Heiðar Davíð -4