Lilja Maren og Veigar efst GA kylfinga á Íslandsmótinu

Mikael Máni lék á pari lokadaginn, fékk fimm fugla!
mynd: golf.is
Mikael Máni lék á pari lokadaginn, fékk fimm fugla!
mynd: golf.is

Stórglæsilegu Íslandsmóti í golfi lauk á Korpúlfsstaðavelli í gær og voru sex GA kylfingar á meðal þátttakenda á lokadeginum.

Í kvennaflokki voru það þær Lilja Maren Jónsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir. Lilja Maren lék frábært golf á lokadeginum og lék hringinn á þremur höggum undir pari eða best allra kvenna og skilaði þessi hringur Lilju í 7. sætið á mótinu, frábær árangur hjá henni.
7.sæti: Lilja Maren Jónsdóttir +16 (78-73-81-68)
T12. sæti: Andrea Ýr Ásmunsdóttir +26 (80-75-77-78)

Í karlaflokki var Veigar efstur af GA kylfingunum en hann lék lokahringinn á 69 höggum eða tveimur höggum undir par og endaði jafn í 11. sæti. Veigar lék flott golf síðustu þrjá keppnisdagana en erfið byrjun fyrsta daginn gerði honum erfitt fyrir að vera í toppbaráttu. 
T11. sæti: Veigar Heiðarsson +3 (79-68-71-69)
23. sæti: Barri Björgvinsson +12 (75-72-73-76)
T24. sæti: Mikael Máni Sigurðsson +13 (78-72-76-71)
T43. sæti: Ágúst Már Þorvaldsson +21 (73-78-78-76)

Við óskum okkar kylfingum til hamingju með flottan árangur og óskum Íslandsmeisturunum í golfi, þeim Dagbjarti Sigurbrandssyni og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur til hamingju með titilinn.