Lilja Maren Jónsdóttir varð rétt í þessu Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 17-18 ára stúlkna. Mótið fór fram dagana 20.-22. ágúst á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili.
Lilja lék frábært og stöðugt golf alla þrjá keppnisdagana. Hún lék hringina á 75, 75 og 74 höggum og lauk mótinu á 224 höggum, átta höggum yfir pari. Lilja sigraði með sex högga mun og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn með glæsilegri frammistöðu. Þetta er enn eini frábæri árangurinn hjá Lilju Maren og við hjá GA erum gríðarlega stolt af henni og hennar frábæra árangri.
Bryndís Eva Ágústsdóttir deilir 2. sæti í flokki 17–18 ára stúlkna á 230 höggum. Björk Hannesdóttir varð í 7. sæti og Ragnheiður Svava Björnsdóttir í 17. sæti.
Í flokki 15–16 ára drengja lék Barri Björgvinsson best GA-félaga. Barri lék fyrsta hringinn á frábærum 69 höggum og endaði í 4. sæti á 228 höggum. Arnar Freyr Viðarsson deilir 7. sæti, Egill Örn Jónsson í 9. sæti, Ágúst Már Þorvaldsson í 10. sæti og Baldur Sam Harley í 28. sæti.
Í flokki 17–18 ára drengja lék Patrekur Máni Ævarsson best GA-félaga og endaði í 6. sæti á 232 höggum. Hafsteinn Thor Guðmundsson deilir 9. sæti og Maron Björgvinsson í 17. sæti.
Kylfingar 14 ára og yngri spiluðu á Þorláksvelli. Í flokki 13–14 ára drengja lék Kristófer Áki Aðalsteinsson best GA-félaga og deilir hann 3. sæti á 225 höggum. Bjarki Þór Elíasson lenti í 19. sæti, Sesar Blær Gautason í 28. sæti og Jóakim Elvin Sigvaldason deilir 30. sæti.
Embla Sigrún Arnsteinsdóttir var eini keppandi GA í flokki 13–14 ára stúlkna og endaði hún í 4. sæti á 241 höggi. Í flokki 12 ára og yngri drengja varð Andri Mikael Steindórsson í 8. sæti.
Við óskum Lilju Maren innilega til hamingju með titilinn og öllum okkar krökkum til hamingju með flottan árangur. Áfram GA!