Landsbankinn og GA áfram í samstarfi

Sigmundur og Arnar handsala samninginn
Sigmundur og Arnar handsala samninginn

Landsbankinn hefur undanfarin ár verið öflugur bakhjarl Golfklúbbs Akureyrar og á því verður engin breyting í ár.

Nú nýverið var undirritaður nýr og stærri samstarfssamningur milli Landsbankans og GA og þökkum við Landsbankanum kærlega fyrir veittan stuðning.

Það er okkur mjög mikilvægt að hafa öfluga og flotta samstarfsaðila og hlökkum við til samstarfsins við Landsbankann á komandi árum.

Á meðfylgjandi mynd handsala Arnar Páll Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri og Sigmundur Ófeigsson formaður GA samninginn.