Landsbankinn endurnýjar samstarf við GA

Frá undirritun samningsins
Frá undirritun samningsins

Landsbankinn á Akureyri hefur endurnýjað samstarfssamninga við þrjú íþróttafélög á Akureyri, Golfklúbb Akureyrar, Knattspyrnudeild KA og Knattspyrnudeild Þórs. Samningar þess efnis voru undirritaðir fimmtudaginn 30. maí sl. í útibúi bankans við Ráðhústorg að viðstöddum fyrirliðum og forráðamönnum félaganna. 
Landsbankinn er virkur í stuðningi við fjölbreytt samfélagsverkefni á Akureyri. Bankinn er bakhjarl nokkurra öflugra íþróttafélaga bæði sumar- og vetraríþrótta. Að þessu sinni var gengið frá samningum við íþróttafélög sem leggja áherslu á sumaríþróttir. „Samningarnir við íþróttafélögin þrjú eru mjög þýðingarmiklir fyrir okkur hér á Akureyri. Við viljum leggja okkar af mörkum til að efla starf félaganna þannig að þau nái góðum árangri,“ segir Inga Ásta Karlsdóttir, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri.

Golfklúbbur Akureyrar þakkar Landsbankanum innilega fyrir framlag þeirra og gott samstarf í gegnum árin.