Kylfumælingar frá Erninum á Jaðri 14.-15. febrúar

Helgina 14.-15. febrúar verða sérfræðingar frá Erninum á svæðinu með kylfumælingar í inniaðstöðunni okkar.

Þeir munu mæla fyrir öllu því nýjasta frá TaylorMade og Srixon og og er þetta svo sannarlega frábært tækifæri fyrir okkar félagsmenn og nærsveitunga að kíkja í golfmælingar.

Qi4D línan frá TaylorMade er nýkomin í sölu og verða þeir með þær kylfur ásamt fleiri í boði.

Hálf mæling er 45 mínútur og kostar 8.500kr, hægt er að panta fulla mælingu líka. 

Pantanir fara fram á jonheidar@gagolf.is