Kvennasveit GA 50+ sigraði 2. deild – góður árangur hjá körlunum

Íslandsmót golfklúbba í flokki 50+ fór fram dagana 20.-22. ágúst. Báðar sveitir GA stóðu sig vel og náðu góðum árangri í mótunum.

Kvennasveit GA lék frábært golf og vann alla sína leiki á mótinu. Sveitin stóð að lokum uppi sem sigurvegari 2. deild eftir 2-1 sigur gegn sameiginlegri sveit Golfklúbbsins Hamars Dalvík og Golfklúbbs Fjallabyggðar. Með sigrinum tryggðu konurnar sér sæti í 1. deild á næsta ári. Þetta er glæsilegur árangur og verður spennandi að fylgjast með sveitinni spila við bestu sveitir landsins á næsta ári.

Kvennasveitin samanstóð af:

Eygló Birgisdóttir
Birgitta Guðjónsdóttir
Guðrún Gísladóttir
Halla Berglind Arnarsdóttir
Fanný Bjarnadóttir
Hrefna Magnúsdóttir

Karlarnir léku í 1. deild og voru aðeins einu stigi frá því að komast í undanúrslit að lokinni riðlakeppni. Þeir unnu tvo af þremur leikjum sínum í riðlinum, þar á meðal 3.5-1,5 sigur á GR. Sveitin spilaði því næst um 5-8 sæti og unnu þeir báða sína leiki. Karlarnir enduðu því í 5.sæti eftir góðan árangur í mótinu. Það mátti engu muna að sveitin kæmist í undanúrslit og geta karlarnir verið stoltir af sínum árangri

Karlasveitin samanstóð af:

Jón Thorarensen
Jón Steindór Árnason
Jón Þór Gunnarsson
Anton Ingi Þorsteinsson
Konráð Vestmann Þorsteinsson
Guðmundur Sigurjónsson
Arnsteinn Jóhannsson
Ólafur Auðunn Gylfason
Jón Birgir Guðmundsson

Við hjá GA erum gríðarlega stolt af okkar kylfingum og óskum báðum sveitum innilega til hamingju með árangurinn!

Áfram GA!