Kvennasaveit GA í 2.sæti á Íslandsmótinu

frá vinstri: Óli Gylfa, Lilja Maren, Ragnheiður Svava, Björk, Bryndís Eva, Andrea Ýr, Arna Rún og Ka…
frá vinstri: Óli Gylfa, Lilja Maren, Ragnheiður Svava, Björk, Bryndís Eva, Andrea Ýr, Arna Rún og Kara Líf.
Mynd: golf.is

Um síðastliðna helgi lauk Íslandsmóti golfklúbba en GA var með báðar sínar sveitir í efstu deild. 

Kvennasveitin okkar spilaði frábært golf allt mótið, sigraði alla sína leiki í riðlinum og vann síðan sveit GR í undanúrslitum og sigraði þann leik. Í úrslitaleiknum mættu þær GM sem var einnig búin að vinna alla sína leiki og endaði úrslitaleikurinn 3,5-1,5 fyrir GM. Lilja Maren vann sinn tvímenning og Kara Líf og Arna Rún gerðu jafntefli í fjórmenning, aðrir leikir töpuðust. Stelpurnar okkar geta verið gríðarlega stoltar af árangri sínum á mótinu. 

Í 1. deild karla misstu strákarnir okkar með naumindum af sæti í undanúrslitum og léku síðan leiki við GS og GOS sem báðir töpuðust í neðri úrslitakeppni og enduðu í 7. sæti. Aðeins eitt lið fellur í 2. deild svo strákarnir sluppu við fall og mæta endurnærðir inn í efstu deild á næsta ári.