Kröfur fyrir skápum komnar í heimabanka

Kæru GA-félagar,

Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2027 verið birt í heimabanka þeirra sem eru með heilsársskápa í Klöppum og Fjósi. Við biðjum ykkur um að ganga frá greiðslu sem fyrst eða hafa samband ef breytingar hafa orðið á högum ykkar. Eindagi kröfunnar er 15. nóvember.

Töluverð eftirspurn er eftir skápum og biðlisti eftir lausum skápum. Ef einhverjir hyggjast ekki nýta sér þessa frábæru aðstöðu áfram, biðjum við þá vinsamlegast um að láta okkur vita sem fyrst með því að senda póst á jonheidar@gagolf.is.

Með bestu kveðju,
Golfklúbbur Akureyrar