Kótilettur á morgun, miðvikudag

Vídalín Veitingar ætla að blása til veislu á morgun, miðvikudaginn 30. september. Það verða kótilettur í raspi og eru margir orðnir mjög spenntir fyrir komandi miðvikudegi enda voru lettur ekki á boðstólnum hér á Jaðri í síðasta mánuði vegna covid-19.
Kótiletturnar hans frægu í raspi verða á boðstólnum og verður nægur matur fyrir gesti og gangandi ásamt því að vel verður gætt að öllum sóttvörnum.

Við hvetjum að sjálfsögðu allt GA fólk og aðstandendur að fjölmenna upp í golfskála á miðvikudaginn og gæða sér að úrvals lettum.
Opið fyrir gesti og gangandi
Herlegheitin hefjast kl.11.30

Allir velkomnir!