Kótilettur á morgun 26. febrúar

Vídalín Veitingar ætla að blása til veislu á morgun, 26. febrúar. Kótiletturnar eru komnar í hús svo að það verður enginn svikinn sem lítur við í dag :) 
Kótiletturnar hans frægu í raspi verða á boðstólnum og verður nægur matur fyrir gesti og gangandi. 
Við hvetjum að sjálfsögðu allt GA fólk og aðstandendur að fjölmenna upp í golfskála á miðvikudaginn og gæða sér að úrvals lettum.
Opið fyrir gesti og gangandi
Herlegheitin hefjast kl.11.30

Allir velkomnir!