Kótilettur á miðvikudag

Vídalín Veitingar ætla að blása til veislu á miðvikudaginn næsta, 29. september - loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir í covid-faraldrinum.
Kótiletturnar hans frægu í raspi verða á boðstólnum og verður nægur matur fyrir gesti og gangandi. 
Við hvetjum að sjálfsögðu allt GA fólk og aðstandendur að fjölmenna upp í golfskála á miðvikudaginn og gæða sér að úrvals lettum.
Opið fyrir gesti og gangandi
Herlegheitin hefjast kl.11.30

Allir velkomnir!