Konudagar í Golfhöllinni um næstu helgi- Frítt í Protee golfherminn

Um næstkomandi helgi, 15 og 16 mars ætlum við að bjóða GA konum að koma í heimsókn til okkar í Golfhöllina og prófa ProTee golfherminn okkar ykkur að kostnaðarlausu.  Þær konur sem hafa áhuga á því að skella sér í golf geta haft samband við Ágúst í síma 8577009 og bókað tíma.

Hvetjum sem flestar konur til að nýta sér þetta frábæra tækifæri og skella sér í golf við bestu aðstæður!

Vonandi sjáum við sem flestar!