Klappir - opnun

Klappir æfingasvæði GA er opið og verður opið um páskana frá 9-20:00

  • Kylfingar eiga að nota blauttuskur eða klúta sem eru við boltavélina til að strjúka af boltakörfu, bæði fyrir og eftir notkun.
  • Þurrka skal af hnöppum á boltavél með blauttuskunum áður en boltar eru verslaðir og notaðir.
  • Að hámarki mega vera 20 kylfingar við æfingu á Klöppum, 10 inni og 10 á efri hæð upp á þaki. Aðeins einn kylfingur má vera í hverjum bás.
  • Allir golfboltar eru sótthreinsaðir í sérstakri þvottastöð á milli notkunar.
  • Starfsmenn GA munu opna hurðir á básunum á morgnanna og loka á kvöldin.
  • Tryggjum og virðum tveggja metra regluna. 

Hlökkum til að sjá ykkur.