Við opnum Klappir í dag, föstudaginn langa, klukkan 11:00!
Æfingabásar á Klöppum eru nú komnir með TrackMan Range búnað en TMR er byltingakennd radar mælingartækni sem veitir lykilupplýsingar eftir hvert slegið högg. Þegar högg hefur verið slegið eru radarar úti á æfingasvæðinu sem mæla flug boltans á sjálfvirkan hátt. Nákvæm lengd bolta á flugi, hraði og ferill birtist í rauntíma á skjá, á bæði einfaldan og skýran hátt. Í hverjum einasta bás á neðri hæðinni á Klöppum er kominn 21 tommu skjár og greiningarbúnaður og geta þá félagsmenn og gestir séð nákvæma greiningu á golfhöggum sínum eða leikið sína uppáhalds golfvelli á æfingasvæðinu – rétt eins og í hefðbundnum golfhermi. Á efri hæðinni geta kylfingar fylgst með höggunum sínum í trackman appi í símanum. Jafnframt býður kerfið uppá allskyns æfingar og leiki sem auka líkurnar á markvissum bætingum og ánægju við æfingar.
Við hvetjum GA félaga og aðra gesti til að ná sér í trackman appið og einnig getur verið gott að skoða leiðbeiningar áður en farið er af stað.
Þar sem enn er snjór á æfingasvæðinu er ekki hægt að týna upp kúlur en við vonumst til að það verði hægt sem fyrst en Klappir eru opnar yfir páskana á meðan kúlur eru til.
Opnunartími á Klöppum er sá sami og í inniaðstöðunni.