Klappir opna á morgun kl.10:00

Á morgun, klukkan 10:00, opna Klappir, æfingasvæði GA fyrir áhugasama kylfinga. 

Klappir verða opnar 10-21 alla daga og verður hægt að fylla á solokortin á milli 9-12 og 13-16 alla virka daga.

Við hvetjum okkar fólk til að vera duglegt að æfa sig því það er svo sannarlega farið að styttast í sumarið. Á sama tíma minnum við á að Golfhöllin er að sjálfsögðu áfram opin og er hægt að æfa sig þar líka.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í sumargírnum!