Æfingasvæðið Klappir opna á föstudaginn 24.apríl kl 14:00. Líkt og áður er svo æfingasvæðið opið til 21:00 á kvöldin. Hvetjum við alla til að ganga vel um og bera virðingu fyrir aðstöðunni sem er hin glæsilegasta.
Í framhaldi af því munum við opna Dúddisen 6.holu æfingavöllinn okkar en það verður auglýst aftur síðar þegar sólin verður búin að leika ögn lengur við hann.
Golfvöllurinn kemur vel undan vetri þrátt fyrir snjóþungan apríl en fram að því var veturinn býsna hagstæður vellinum. Enn er þó töluvert frost í jarðveginum og mikið um frostlyftingar sem síga svo niður þegar klakinn í jarðveginum lætur undan. Við biðjum því forvitna og áhugasama kylfinga að fara varlega um svæðið þar sem jörðin getur gefið sig undan fætinum við þessar aðstæður. Um völlinn eru frábærir stígar sem við biðjum fólk um að nota og minnum á að JaðarBistro ásamt inniaðstöðunni okkar er opin áfram.
Fyrirhugaðar eru breytingar á rástímaskráningu fyrir sumarið 2026 á Jaðarsvelli sem verða kynntar félagsmönnum á næstu vikum. Við munum áfram skipta vellinum upp í tvo hluta í byrjun sumars og á haustin en það fyrirkomulag verður út maí og síðan verður eðlileg 18 holu skráning í júní, júlí og ágúst. Opnað verður fyrir þá þrjá mánuði á sama tíma og geta félagsmenn okkar haft fjóra virka rástíma á því tímabili. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel fyrir klúbba á höfuðborgarsvæðinu og hlökkum við til að prófa þetta. Eins og áður segir þá munum við kynna þetta enn betur fyrir félagsmenn okkar á næstu vikum.
Nokkrir dagar eru eftir af útsölunni okkar af What Bunkers og J.Lindeberg fatnaði, 40-60% sem lifir út apríl mánuð.


