Íslandsmót golfklúbba er um næstu helgi

Örvar er bikaraóður þessa dagana - hann ætlar sér stóra hluti með sveit GA
Örvar er bikaraóður þessa dagana - hann ætlar sér stóra hluti með sveit GA

Um helgina fer fram Íslandsmót golfklúbba og leikur karlasveit GA í efstu deild en hún verður spiluð í Leirdalnum hjá GKG og á Urriðavellinum hjá GO. 

Sveit GA er í riðli með GK, GKG og GS og er ljóst að um hörkuviðureignir verður að ræða.

Sveit okkar manna er þannig skipuð:
Örvar Samúelsson
Tumi Hrafn Kúld
Víðir Steinar Tómasson
Eyþór Hrafnar Ketilsson
Lárus Ingi Antonsson
Óskar Páll Valsson
Ævarr Freyr Birgisson
Mikael Máni Sigurðsson

Heiðar Davíð fer með strákunum suður ásamt Gunnari Aðalgeir sem er liðsstjóri sveitarinnar.

Við sendum drengjunum góða strauma og munum flytja klúbbfélögum frekari fregnir af þeim þegar mótið hefst.