Jónas Jónsson fór holu í höggi á Islantilla

Hola í höggi á 20. braut á Islantilla

Jónas notaði 7 járn í draumahöggið holan er 142 metrar á lengd, flötin liggur aðeins hærra svo ekki sést í holuna frá teig.

Jónas var að sjálfsögðu hoppandi glaður þegar kom í ljós að kúlan var í holunni að sögn eiginkonunnar Guðlaugar Óskarsdóttur sem var með honum í hollinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas fer holu í höggi og óskum við honum til hamingju með það.