Jákvæðar horfur á flötunum á Jaðri

Eins og sjá má hér þá lítur þetta ansi vel út!
Eins og sjá má hér þá lítur þetta ansi vel út!

Eins og sjá má er ísinn ekki þykkur

Staðan á flötunum upp á Jaðri er bara nokkuð góð.  Stærstur hluti flatanna lítur vel út undir klakanum og mikið af grænu sem kemur undan honum þegar hann er brotinn af.

Það eru flatir sem ekki fóru nógu góðar inn í veturinn sem aðeins sér á, en það er allstaðar grænt gras á þeim sem er mjög jákvætt.  Það má þó búast við því að einhver svæði verði illa farin en við bindum miklar vonir við að þau svæði verði í algeru lágmarki.

Steindór vallarstjóri hefur unnið hörðum höndum að því að vetur að halda flötunum við og virðist sú vinna vera að skila tilætluðum árangri eins og staðan er núna.  Í gær var ísinn brotinn á flestum flötum vallarins og verður sú vinna kláruð í dag.  Klakinn er ekki þykkur og því kemst hann alla leið í gegn og loftar þannig um flatirnar.  Er þetta í annað sinn í vetur sem klakinn er brotinn á öllum flötum vallarins.

Við höfum orðið varir við einhverja sýkingu undir klakanum en það ætti að ganga hratt og örugglega að vinna á henni í vor.

Einnig hefur verið notast við hitakapla sem lagðir eru ofan á flatirnar og hefur það reynst virkilega vel og bindum við miklar vonir við að sú lausn geti reynst okkur vel til framtíðar.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig flatirnar líta út undir klakanum sem og þann árangur sem næst með hitavírunum.

Við horfum því björtum og jákvæðum augum til vorsins og höfum fulla trú á því að sú vinna sem innt hefur verið af hendi í vetur muni skila tilætluðum árangri.  

Hitavírarnir brenna sig hratt í gegnum klakann og gefa nauðsynlega öndun

Eins og sjá má þá er klakinn ekki þykkur