Jaðarsvöllur opnar aftur

Nú er spáð hlýindum næstu daga og því ekkert því fyrirstöðu að opna Jaðarsvöll aftur.  Hann opnar á morgun, fimmtudag kl. 12:00.  Um helgina verður síðan opið frá 10 á morgnana.  Rástímaskráning á golf.is er áfram í gildi. 

Við biðjum kylfinga að ganga sérstaklega varlega um völlinn.  Það er m.a. átt við að setja torfusnepla í kylfuför, gæta að kúluförum á flötum og fara ekki með kerrur og bíla yfir viðkvæm svæði.  Nánar um umgengni.