Jaðarsvöllur lokar um helgina vegna frosts

Nú spáir frosti um helgina og verður Jaðarsvöllur því lokaður eftir föstudaginn 4. október.  Ástæðan er að völlurinn verður mjög viðkvæmur þegar frýs og því ekki ráðlegt að spila á honum við þær aðstæður.

Lokunin gildir nema að það hlýni.  Ef til opnunar kemur aftur í haust verður tilkynnt um það sérstaklega.