Jaðarsvöllur lokar fyrir veturinn

Þetta golfsumar verður lengi í minnum haft. Nú hefur verið ákveðið að loka Jaðarsvelli fyrir veturinn þar sem spáð er frosti og úrkomu næstu daga.

Þrátt fyrir að völlurinn hafi ekki opnað fyrr en síðari hluta maí, sem var nokkuð seinna en undanfarin ár, var hann opinn í samtals 170 daga á tímabilinu. Síðasti leikdagurinn var 8. nóvember, sem verður að teljast afar góður árangur. Í nóvember voru leiknir tæplega 450 hringir á vellinum.

Samtals voru leiknir 37.214 hringir á Jaðarsvelli árið 2026. Þar af léku félagsmenn Golfklúbbs Akureyrar 28.417 hringi, að mótshringjum undanskildum.

Við hjá Golfklúbbi Akureyrar viljum færa félagsmönnum okkar, starfsfólki, sjálfboðaliðum og öllum þeim gestum sem heimsóttu okkur í sumar innilegar þakkir fyrir frábært tímabil. Völlurinn var í einstaklega góðu ástandi allt sumarið og við hlökkum nú þegar til að taka á móti ykkur á ný næsta vor.

Þó útitímabilinu sé lokið er starfsemin langt frá því að leggjast í dvala. Inniaðstaðan okkar er opin og bókanir hafa farið vel af stað. Við minnum kylfinga því á að Jaðar er opinn allt árið um kring. 

Golfhermabókanir fara fram á golfhermar.gagolf.is og er Jaðar Bistro með glæsilegt hádegishlaðborð alla virka daga. Það er því nóg um að vera á Jaðri yfir vetrarmánuðina og við hlökkum til að taka á móti félagsmönnum og gestum áfram í vetur.