Jaðar tilnefndur sem besti golfvöllur landsins 2015

Jaðarsvöllur var einn af sjö golfvöllum sem tilnefndur var sem besti golfvöllur Íslands árið 2015 af World Golf Awards.

Það fór svo þannig að sá völlur sem fékk útnefninguna sem besti völlur landsins var Hvaleyrarvöllur og er hann vel að þeim titli kominn og óskum við Keilismönnum kærlega til hamingju.

Við GA félagar megum líka vera ansi stolt af okkar velli og það er virkilega gaman að komast inn á svona lista :)

Hér má sjá heimasíðu World Golf Awards http://worldgolfawards.com/