Íslandsmótið í golfi - Sjálfboðaliðar

Íslandsmótið í golfi - Sjálfboðaliðar

 Nú er komið að okkur GA félögum  að halda íslandsmótið í golfi og fer það fram dagana 5 - 8 ágúst, frá fimmtudegi til sunnudags..
Íslandsmótið í höggleik - Sjálfboðaliðar

Nú er komið að okkur GA félögum  að halda íslandsmótið í golfi og fer það fram dagana 5-8 ágúst,frá fimmtudegi til sunnudags..

Vel hefur gengið að fá sjálfboðaliða til að starfa við mótið en okkur vantar ennþá nokkra til að fullmanna í allar stöður :)

Mótið er  það stærsta og umfangsmesta meðal kylfinga hér á landi  og nú langar okkur hjá Golfklúbbi Akureyrar að biðla til okkar flottu félagsmanna  að aðstoða okkur svo að mótið verðið hið allra glæsilegasta og þátttakendur sem og aðrir gestir fari héðan glaðir.

Til þess að mótið gangi eins og best verður á kosið  þá þurfum við sjálfboðaliða í hin ýmsu störf.  Það er nú alltaf þannig að margar hendur vinna létt verk :)

Þau verkefni sem okkur vantar aðstoð við eru meðal annars:

  • Framvarsla (Forcaddy) á nokkrum brautum.
  • Umferðarstjórnun á ákveðnum stöðum á vellinum og á lokadögum eftir síðustu holl
  • Bílstjórar á golfbíla fyrir t.d. blaðamenn
  • Móttaka skorkorta
  • Umsjón með æfingasvæði
  • Ýmislegt snatt alla dagana.
  • Annað.

 Þeir kylfingar sem geta aðstoðað okkur á meðan að á móti stendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hjá Steindóri á steindor@gagolf.is eða í síma 847 9000 og tilgreina þá hvenær viðkomandi getur aðstoðað.

Við munum svo eftir að Íslandsmótinu líkur halda 9 holu golfmót sem endar á grillveislu fyrir alla sjálfboðaliðana.

Með von um góðar móttökur.

Steindór Kr. Ragnarsspn.  Framkvæmdastjóri GA