Íslandsmót unglinga í holukeppni

Núna stendur yfir íslandsmót unglinga í holukeppni.

Þar áttum við GA félagar allnokkra fulltrúa og hafa þau öll staðið sig mjög vel.

Hún Andrea Ýr er komin í úrslit í sínum flokk eftir frábært golf í undanúrslitunum í morgun.

Þar sigraði hún sinn andstæðing 6/5 og var stelpan á parinu eftir 13 holur.  Sannarlega alveg frábært golf hjá henni Andreu :)

Nú tekur við úrslitaleikurinn og óskum við henni góðs gengis!