Íslandsmót golfklúbba 50+

Nú í dag hefst Íslandsmót golfklúbba 50+ og sendir GA sveit í karla- og kvennaflokki.

Karlarnir okkar leika í efstu deild en spilað er í Borgarnesi og er lið okkar manna þannig skipað: Eiður Stefánsson, Jón Birgir Guðmundsson, Jón Þór Gunnarsson, Jón Thorarensen, Kjartan Fossberg Sigurðsson, Kristján Hilmir Gylfason, Ólafur Gylfason og Valmar Valjaots. Þeir hófu leik á móti GS í morgun kl.8 og spila Jón Birgir og Kjartan fjórmenning og Óli, Kristján, Jón Þór og Eiður tvímenning. 

Konurnar okkar leika á Hólmsvelli í Leiru í 2. deild og er liðið þannig skipað: Birgitta Guðjónsdóttir, Birgitta Guðmundsdóttir, Eygló Birgisdóttir, Fanný Bjarnadóttir, Guðlaug María Óskarsdóttir og Hrefna Magnúsdóttir. Stelpurnar hófu leik á móti GB í morgun en Eygló og Gulla leika fjórmenning og Fanný og Birgitta Guðjóns tvímenning.

Við óskum sveitum GA góðs gengis á Íslandsmótinu og munum flytja frekari fréttir af þeim á komandi dögum. öld