Ísland í 23. sæti á HM stúlknalandsliða

mynd:golf.is
mynd:golf.is

Stelpurnar okkar ásamt Emblu Hrönn úr GKG enduðu í 23. sæti á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða sem haldið var í Ontario í Kanada.

Tvö bestu skor liðsmanna töldu hvern dag og endaði íslenska landsliðið á samtals 48 höggum yfir pari en það var lið Bandaríkjanna sem varð heimsmeistari á 15 höggum undir pari. 

Lilja Maren endaði jöfn í 57. sæti á + 28 höggum. Lilja lék hringina á 79-78-71-84 en átti hún besta hring íslensku stelpnanna á degi þrjú þegar hún lék á pari vallarins.
Bryndís Eva endaði í 63. sæti á +31 höggi en hún lék hringina á 79-76-78-82.

Stelpurnar öðlast gríðarlega reynslu með þátttöku á þessu móti og er ljóst að þetta mun gefa þeim innspýtingu í þeirra golf. 

Við hjá Golfklúbbi Akureyrar erum gríðarlega stolt af því að hafa tvær landsliðsstelpur úr okkar röðum.