Inniaðstaða Golfklúbbs Akureyrar

Fréttir af inniaðstöðu í kjallara íþróttahallar.

Ágætu golffélagar 

Fréttir af inniaðstöðu í kjallara íþróttahallar. 

Þegar farið var af stað með hugmyndavinnu um nýtingu kjallarans fyrir GA og Skotfélagið kom í ljós að endurnýja þyrfti brunahönnun rýmisins og fá hana samþykkta hjá byggingareftirlitinu. Segja má að þessi þáttur hafi komið svolítið aftan að okkur og valdið því að GA og Skotfélagið hafa ekki getað hafið vinnu við framkvæmdir aðrar en að rífa niður og henda út því sem ekki á að nota. Brunahönnun þarf að fara í gegnum visst ferli hjá bænum og lofað var að það yrði klárað í janúar.

Samþykki fyrir brunahönnun kom svo núna 20. janúar og í framhaldi af því voru sendar inn teikningar til byggingafulltrúa sem verða teknar fyrir á næsta fundi hjá þeim, þegar því ferli er lokið verður gefið út byggingarleyfi, þá tekur við verkferli af hálfu bæjarins um að klára vissar framkvæmdir sem lúta að þeim og í framhaldinu er hægt að hefja uppbyggingu á fullu. Hingað til hefur bærinn verið að endurnýja lagnir í lagnakjallara og við að rífa niður það sem ekki stóð til að nota og nú verður farið af krafti í að taka niður nokkra létta veggi og mála. Það er ekki hægt að lofa hvenær endanlegum frágangi verður lokið en lagt verður kapp á að klára þetta sem fyrst. 

Hvað varðar aðstöðu okkar í dag þá er hún ekki alslæm. Í Þrekhöllinni höfum við 3 mottur uppi þar sem hægt er að slá í net. Einnig er hægt að setja upp púttrenning þar sem hægt er að æfa strokuna en ekki eru til staðar holur enn sem komið er.

Við höfum 18 holu golfhermi þar sem hver og einn kylfingur getur pantað sér tíma. Ennfremur er í herminum æfingasvæði sem hægt er að bóka sér tíma í.

Ekki má gleyma aðstöðunni í Boganum, en við höfum 3 tíma þar á viku, 2 fyrir börn/unglinga og almenna kylfinga og auk þess einn fyrir afrekshópinn. Held að við getum fullyrt það að það er enginn annar golfklúbbur á landinu með þannig aðstöðu fyrir börn og unglinga í sínum klúbbum. 

Eins og staðan er í dag er ljóst að það mun taka tíma að klára aðstöðuna okkar endanlega. Það er hins vegar ósk okkar að  kylfingar í GA taki viljann fyrir verkið og sjái björtu hliðarnar á því sem þó er til staðar enn sem komið er og noti sér þá aðstöðu sem er tilbúin í dag. Vonandi getum við svo opnað nýtt púttsvæði og klárað inniaðstöðuna okkar eins og við viljum hafa hana sem fyrst.