Icewear bomban á sunnudaginn um versló

Á sunnudaginn næsta um verslunarmannahelgina verður hin árlega Icewear bomba á sínum stað. Mótið er fyrir löngu búið að stimpla sig inn sem eitt allra vinsælasta mót okkar GA manna og í fyrra voru 164 þátttakendur. 

Keppnisskilmálar fyrir mótið eru: 

  • Keppt er með Texas Scramble fyrirkomulagi, tveir kylfingar eru saman í liði. Leikinn er höggleikur með forgjöf.
  • Forgjöf liðs er reiknuð samanlögð leikforgjöf kylfinga deilt með 5.
  • Hámarksleikforgjöf karla er 24 og kvenna 28.
  • Kylfingar skulu leika frá eftirfarandi teigum:
    • Karlar 15-69 ára: Gulir
    • Konur: Rauðir
    • 14 ára og yngri: Rauðir
    • 70 ára og eldri: Rauðir
    • Kylfingur ber endanlega ábyrgð á að spilað sé með rétta forgjöf eftir teigum.
  • Ef lið eru jöfn í verðlaunasæti er byrjað á að telja til baka síðust níu holurnar, síðan síðustu sex, síðustu þrjár og að lokum síðustu holuna. Alltaf skal talið til baka með hlutfallslegri forgjöf. Ef lið eru ennþá jöfn skal notast við hlutkesti.
  • Skorkorti telst skilað þegar leikmaður/lið hefur afhent fulltrúa mótsstjórnar skorkortið og yfirgefið svæðið sem til þess er ætlað eða staðfest kortið sem skilað var rafrænt. Ef skila á skorkorti í þar til gerðan kassa telst skorkortinu skilað þegar leikmaður/lið hefur sett skorkortið í kassann.
  • Einungis geta þeir kylfingar hlotið verðlaun sem eru fullgildir meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi innan GSÍ.
  • Að öðru leyti gilda almennar móta- og keppendareglur GSÍ.

Verðlaun eru veitt fyrir 5 efstu sætin ásamt fjölda aukavinninga, meðal annars næstur holu og lengsta drive. 

Skráning fer fram á email skrifstofa@gagolf.is eða í síma 462-2974 - hvetjum alla til að skrá sig!