Eins og margir kylfingar vita höfum við fjölgað slátturróbótum mikið á vellinum í sumar.
Vallarstarfsmenn okkar hafa fjarlægt járn sem voru við glompur þar sem hrífur voru geymdar og eru kylfingar vinsamlegast beðnir um að setja hrífur ofan í glompurnar núna. Róbótarnir slá í kringum þær og ef hrífurnar eru á grasinu við þær eiga þeir það til að slá í þær og festast.
Það er því mikilvægt að setja hrífurnar ofan í glompurnar eftir að þær hafa verið rakaðar.