Holukeppni GA verður á sínum stað

Holukeppni GA snýr aftur eftir eftir vel heppnaða keppni í fyrra!

Mjög einfalt er að taka þátt - þú skráir þig til leiks hér og eftir að skráningarfresti líkur er dregið um hvaða kylfingar mætast í fyrstu umferð. Hámarksþátttaka eru 64 kylfingar.

  • Leikið er holukeppni með forgjöf - hámarksforgjöf er 36 (vallarforgjöf).
  • Karlar leika af teigum 55 og konur af teigum 45.

Skráning fer fram í gegnum golfbox og greiðist mótsgjald við skráningu. Kylfingar sjá um að skrá sig sjálfir á rástíma í gegnum golfbox. Leikið er sín á milli með fullri forgjöf kylfinga en hámarksforgjöf eins og áður segir 36 í vallarforgjöf.
Dæmi: Kylfingur A er með 5 í vallarforgjöf og kylfingur B með 19 í vallarforgjöf, þá er mismunurinn 14 og kylfingur B fær 1 högg í forgjöf á 14 erfiðustu holur vallarins.

Leikvikur:

  • ​64 manna úrslit (ef þarf): Umferð lokið 16. júní
  • 32 manna úrslit: Umferð lokið 13. júlí
  • 16 manna úrslit: Umferð lokið 31. júlí
  • 8 manna úrslit: Umferð lokið 17. ágúst
  • Undanúrslit: Umferð lokið 27. ágúst
  • Úrslitaleikur: Umferð lokið 7. september

Ef leikur hefur ekki farið fram þegar leiktími rennur út verður keppendum úthlutað rástíma. Ef keppendur mæta hvorugir til leiks þá eru úrslit fengin með hlutkesti. Ef annar keppandinn mætir þá sigrar hann 5/4.

Hvetjum GA félaga til að taka þátt í þessu skemmtilega móti, þátttökugjald er 2.500kr og eru verðlaun veitt fyrir tvö efstu sætin.

Hér er skilað inn úrslitum úr leikjum: https://forms.gle/mNppj5PdB2hLn47Y8