Höldur verður aðalstyrktaraðili Golfklúbbs Akureyrar

Forsvarsmenn GA og Hölds eftir undirskrift
Forsvarsmenn GA og Hölds eftir undirskrift

Nú nýverið skrifuðu forsvarsmenn GA og Hölds undir langtímasamning, nánar tiltekið til næstu sex ára.

Höldur verður aðalstyrktaraðili GA á samningstímanum og er það mikið fagnaðarefni.

Höldur hefur í gegnum tíðina styrkt vel við bakið á GA og er það virkilega ánægjulegt að svo verði áfram og þá í meira mæli en verið hefur hingað til.

Samningur sem þessi skiptir klúbbinn miklu máli og gerir hann okkur kleift að halda áfram að efla og bæta starf Golfklúbbs Akureyrar til muna.

Þökkum við Höld kærlega fyrir veittan stuðning og hlökkum til samstarfsins næstu árin.