Hola í höggi

Árni Björn Árnason fór holu í höggi á 18. braut í gær

Að sögn Árna var þetta draumahögg í allastaði kúlan var strikbein stefndi beint á holu lenti í flatarkanti og rúllaði beint í. Árni Björn og félagar spila nánast upp á hvern einasta dag ársins þegar hægt er að komast í golf og spila þá 9 holur og þá yfirleitt fyrri 9 holurnar en í gær breyttu þeir út af og spiluðu seinni 9 og endaði sá hringur á holu í höggi á 18.

Árni er búin að bíða eftir þessu draumahöggi í yfir 30 ár - aldrei farið áður holu í höggi.

Með honum í hollinu voru Sigurður Stefánsson, Svanberg Þórðarsson og Valberg Ingvarsson.

Til hamingju með þetta Árni.