Hola í höggi!

Elfar var á hlið eftir höggið :)
Elfar var á hlið eftir höggið :)

Elfar Halldórsson kylfingur úr GA gerði sér lítið fyrir og skellti sér holu í höggi á 14. braut á þriðjudaginn síðasta. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem drengurinn fer holu í höggi en er tilfinningin alltaf jafn góð sagði hann með bros á vör eftir hringinn. Aðspurður sagði Elfar að 14 holan væri nú að verða ein af hans uppáhalds holum á seinni 9 :) 

Afrekinu var fagnað vel og lengi á þriðjudaginn hjá Elfari og fjölskyldu hans en bræður hans báðir Torfi og Ómar og faðir hans Halldór Rafnsson voru með Elfari í holli.