Hola í höggi!

Skúli Gunnar Ágústsson sem er flestum GA félögum kunnugur var rétt í þessu að negla holu í höggi á 18. holu. Hann notaði til þess 5 járn og lenti boltinn inn á gríni og skoppaði tvisvar og rúllaði svo ofan í, boltinn var allan tímann á leiðinni ofan í segir Skúli sjálfur. Þetta var í fjórða skiptið á ferlinum sem hann fer holu í höggi, sportið er ekki flókið fyrir þennan meistara!