Herramót Rub23 á föstudaginn

Hið stórskemmtilega Herramót Rub23 verður haldið föstudaginn 17. júlí og eru glæsilegir vinningar í boði fyrir þrjú efstu sætin, bæði í punktakeppni og í höggleik.

Einnig eru verðlaun fyrir næstur holu á par þrjú holum vallarins. 

Höggleikur:
1. sæti.  40.000 króna gjafabréf á Rub23 og bikar
2. sæti.  30.000 króna gjafabréf á Rub23
3.sæti.  20.000 króna gjafabréf á Rub23

Punktakeppni:
1. sæti.  40.000 króna gjafabréf á Rub23 og bikar
2. sæti.  30.000 króna gjafabréf á Rub23
3.sæti.  20.000 króna gjafabréf á Rub23

Best klæddi kylfingurinn verður að sjálfsögðu valinn og fær hann gjafabréf á Rub23 og bikar.

Vinsamlegast athugið að ræst er samtímis af öllum teigum og hefst mótið kl. 17:30. Mæting kl. 17:00.  

Skráningin á netinu er því einungis til þess að hægt sé að raða sér saman í holl en skráning fer fram hér. Verðlaunaafhending og léttar veitingar beint eftir mót og dregið verður úr skorkortum!

Uppselt var í mótið í fyrra og eru örfá sæti laus í mótið í ár. Skráning fer fram á golf.is eða í síma 462-2974 - 20 ára aldurstakmark!