Heiðursviðurkenning ÍTA

Árni Jónsson golfkennari heiðraður.

Við útnefningu Íþróttamanns Akureyrar sl. miðvikudagskvöld voru fjórir einstaklingar heiðraðir fyrir störf þeirra að íþrótta- og æskulýðsmálum í bænum. Þetta eru Árni Jónsson, Golfklúbbi Akureyrar, Gunnar Viðar Eiríksson Sundfélaginu Óðni, Stefán Jónasson Skíðafélagi Akureyrar og Skjöldur Jónsson KA.

Kristinn Svanbergsson, íþróttafulltrúi og Nói Björnsson formaður íþróttaráðs afhentu viðurkenningarnar. 

Árni gekk í Golfklúbb Akureyrar í kringum árið 1950 og hefur verið viðloðandi klúbbinn síðan, sem félagi, stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og golfkennari.

Árni sat í stjórn GA frá 1967-1979, sem meðstjórnandi, ritari og varaformaður. 

Gegndi starfi framkvæmdastjóra GA á árunum 1984-1989.  Á þeim tíma urðu mikilvægar breytingar á starfi klúbbsins er snéri að þjálfun barna og unglinga, en á tímabilinu var ráðinn fyrsti golfkennarinn til GA sem sinnti starfinu í fullu starfi.

Varð Akureyrarmeistari í golfi 1975 og í öðru sæti oftar en hann kærir sig um að muna.  Tók þátt í fjölmörgum mótum um allt land og sigraði í mörgum þeirra. Þá átti Árni um tíma vallarmet á nokkrum golfvöllum á Norðurlandi.

Árið 1972 tók Árni að sér að þjálfa börn og unglinga Golfklúbbs Akureyrar og má segja að þá hafi orðið þáttaskil hjá klúbbnum því klúbburinn skipaði sér fljótt í fremstu röð golfklúbba á Íslandi. Árni hefur því starfað sem golfkennari í tæp 40 ár og gerir enn, en um helming þessa tíma hefur hann starfað fyrir GA.  Á þessum tíma hafa orðið til undir hans stjórn fjöldinn allur af Íslandsmeisturum, bæði í einstaklings- og sveitakeppnum.

Golfklúbbur Akureyrar óskar Árna innilega til hamingju með þessa viðurkenningu um leið og honum eru þökkuð störf hans fyrir golfklúbbinn.