Heiðar Davíð Bragason ráðinn til GA

Steindór og Heiðar við undirritun samningsins
Steindór og Heiðar við undirritun samningsins

Golfklúbbur Akureyrar hefur ráðið Heiðar Davíð Bragason sem yfirgolfkennara GA.

Heiðar Davíð er 40 ára og hefur starfað síðustu ár sem íþróttakennari á Dalvík og golfkennari hjá Golfklúbbnum Hamri samhliða því. Heiðar mun áfram sinna golfkennslu á Dalvík samhliða starfi sínu hjá GA, en mun láta af störfum sem íþróttakennari í vor. Mikil gróska hefur verið í golfíþróttinni á Dalvík undanfarið og á þar Heiðar mikinn hlut í.  Áður en Heiðar hóf að vinna við golfkennslu náði hann góðum árangri sem leikmaður og varð m.a. Íslandsmeistari í golfi árið 2005.

Heiðar mun sinna afreksþjálfun fram að sumri í samstarfi við Stefaníu Kristínu aðstoðargolfkennara en mun svo hefja formleg störf 1. júní næstkomandi. Heiðar er giftur Guðríði Sveinsdóttur og eiga þau saman tvo drengi.

"Ég er mjög spenntur fyrir þessu starfi, GA er stór golfklúbbur sem býður upp á mikil tækifæri, jafnt í barna- og unglingastarfi, afreksstarfi og þjónustu við hinn almenna kylfing.  Ég get ekki beðið eftir því að kynnast fólkinu í GA og hlakka mikið til að hefjast handa" segir Heiðar

Bjóðum við Heiðar velkominn í GA og hlökkum til samstarfsins.

Heiðar, Stefanía og Steindór

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heiðar, Stefanía og Steindór eftir undirritun samningsins