Við byrjum aukið eftirlit á vellinum í dag en það mun vera starfsmaður frá GA í ræsisturninum að taka á móti fólki á teig og bjóða þau velkomin.
Starfsmaðurinn mun fylgjast með staðfestingu á völlinn, leikhraða og að réttir aðilar séu skráðir á teig sem mæta.
Hann mun aðstoða kylfinga að staðfesta sig og leiðbeina eftir bestu getu.
Fyrst um sinn verður þetta á ýmsum tímum yfir daginn og biðjum við félagsmenn okkar og gesti að taka vel á móti þeim sem verða í þessu starfi.